Flutt

Ég hef nánast ekkert skrifað í sumar og ætla svosem ekki að gefa neinar yfirlýsingar um hvort eða hversu mikið ég birti framvegis. Það sem ég á annað borð birti verður þó hér eftir aðgengilegt á slóðinni www.nornabudin.is/sapuopera.

Hvað eru glæpasamtök?

Ég játa að mér finnst það óhugnanleg tilhugsun að Vítisenglar og álíka samtök nái fótfestu á Íslandi. Ég er hinsvegar líka meðvituð um að öll mín vitneskja um slík 'gengi' er til komin fyrir einhliða umfjöllun fjölmiðla. Ég hef aldrei talað við neinn úr mótorhjólasamtökum á borð við Fáfni, hvað þá Vítisengil og veit í rauninni ekkert um það hvers vegna Vítisenglar ganga um (eða aka um) og berja mann og annan. Hverjir eru þeir og hvaðan koma þeir? Hvað eru þeir svona óánægðir með og hvað vilja þeir? Hvað er svona æðislegt við Helvíti? Hversvegna líta þeir á fórnarlömb sín sem óvini? Af hverju álíta þeir aðferðir sínar æskilegar?

Af almennri umfjöllun um svokölluð gengi má helst ráða að það séu svona ljótukallasamtök. Samsafn af vondum manneskjum sem hafa það helst að markmiði að ræna og drepa og nauðga og meiða án þess að nokkur tilgangur búi að baki. Auðvitað er þetta ekki svo einfalt. Þegar upp er staðið eru gengi ekkert annað en hagsmunasamtök sem af einhverjum ástæðum hafa valið að beita ólöglegum aðferðum.

Hvort sem sú afstaða á sér réttlætanlegar ástæður eða ekki, þætti mér viðeigandi að fjölmiðlar kynntu bakgrunninn og hugmyndafræðina sem 'gengin' vinna eftir, þegar fjallað er um samfélagsógnina sem af þeim stafar. Ég gæti nefnilega best trúað því að auðveldara sé að draga úr þeirri ógn ef samfélagið skilur tilurð og hugsunarhátt gengisins. Það hefur allavega ekki virkað vel hingað til að stilla upp ímyndinni af Dr. Evil á móti hinu siðmenntaða samfélagi, sem þegar allt kemur til alls, er helst frábrugðið genginu að því leyti að yfirgangur ákveðinna hagsmunahópa er viðurkenndur og bundinn í lög. 


mbl.is Vaxandi samfélagsógn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefur löggi tillögu um hvar eigi frekar að skera niður?

Ég held að flestir geri sér fulla grein fyrir því að fjárveitingar til lögreglu eru of lágar miðað við það starf sem henni er ætlað að sinna. Hinsvegar eru fjárveitingar til heilbrigðiskerfisins, menntakerfisins, atvinnusköpunar, menningarinnar o.s.frv. líka of lágar.

Annars minnir mig að víða hafi verið kveinað undan lélegum fjárveitingum á meðan íslenska efnahagsundrið blómstraði.


mbl.is Lögreglumenn örþreyttir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir eru búnir að svara þessu

Það hafa engin skilyrði verið sett fyrir láninu heldur verða þau sett eftir þörfum. Ríkisstjórnin fær 'ráðgjöf' og ef hún fer ekki eftir ráðunum og finnur heldur ekki aðra leið til að borga, þá verða sett skilyrði, alveg eins og í öllum hinum löndunum sem hafa misst ríkisfyrirtæki, auðlindir og sjálfstæði sitt í klær amerískra stórfyrirtækja með milligöngu AGS.

Við þurfum samt ekki að hafa neinar áhyggjur því þetta reddast allt með hagsveifluleiðréttum frumjöfnuði.


mbl.is Vill að AGS leggi spilin á borðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er eiginlega að Elling?

Af hverju taka menn allaf það sem er fullkomið eins og það er og gera það aftur? Er ekki eitthvað stórkostlega athugavert við hugmyndaflug þeirra sem geta ekki bara gert eitthvað nýtt? Ef út í það er farið er svosem ekkert nýtt undir sólinni, við byggjum alltaf á því sem við þekkjum en fjandinn hafi það, hvað er eiginlega að upprunalegu útgáfunni?
mbl.is Sigurjón gerir mynd með Steve Carell
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú hann hlýtur að eiga að sinna sömu bófum og lögreglan

Nú hefur ríkissaksóknari sagt sig frá öllum málum sem tengjast bankahruninu. Hann vill hinsvegar sinna öðrum verkefnum embættisins, sem hlýtur að merkja að hann vilji eltast við sömu bófa og lögreglan.

Ekki hefur farið mikið fyrir handtökum á útrásarvíkingum, bankastjórum og fólki innan stjórnsýslunnar en hinsvegar er löggan dugleg við að uppræta kannabishreiður og lemja aktivista. Það liggur því í augum uppi að verkefni ríkissaksóknara næstu ár og jafnvel áratugi verða fyrst og fremst að útvega hasshausum og friðarsinnum fæði og húsnæði á kostnað ríkisins. Svo er náttúrulega alltaf eitthvað um að þurfi að dæma bjána sem hafa ekki borgað hraðasektirnar sínar og varla eru það vinir Valla sem fremja slíka stórglæpi. Það verður því hægt að finna nóg verkefni fyrir ríkissaksóknara að dunda við.

Nú og ef verður verkefnaþurrð, þá getur hann notað tímann til aukahreingerningar á skrifstofunni, skrúbba gólflista og fleira sem ekki er gert vikulega. Þannig er starfsfólk allavega nýtt á mínum vinnustað ef er lítið að gera. Ég meina varla vilja Íslendingar fara að fjölga fólki á atvinnuleysisskrá.


mbl.is Joly: Hvað á ríkissaksóknari að gera?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En hversu hátt hlutfall karla?

Mér þætti fróðlegt að sjá niðurstöðuna um það hve hátt hlutfall karla verður fyrir ofbeldi af hálfu maka ef sömu skilgreiningar eru notaðar um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi (það kemur mér á óvart að fjárhagslegt ofbeldi sé ekki í upptalningunni). 

Ég er nokkuð viss um að karlar beita konur frekar líkamlegu ofbeldi en konur karla, enda eru þeir einfaldlega sterkari. Ég held líka að karlar séu líklegri til að neita ef þeir eru spurðir hvort þeir búi við andlegt ofbeldi. Hinsvegar gæti niðurstaðan orðið önnur ef þeir fengju spurningar um það hvort makar þeirra geri oft lítið úr þeim, segi oft eitthvað sem veki sektarkennd eða þá tilfinningu að þeir standi sig ekki o.s.frv. Ætli sé, þegar upp er staðið mikill munur á því hvernig kynjunum líður í sambúð eða hjónabandi? Og hvaða endemis fórnarlambsheilkenni er þetta eiginlega sem konur eru haldnar? Af hverju fara þær ekki bara ef karlarnir eru vondir við þær?


mbl.is Fjórðungur orðið fyrir ofbeldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugmynd í kollinum er gagnslaus

Margir virðast halda að það sé eitthvað merkilegt að fá hugmyndir. Þegar við opnuðum Nornabúðina á sínum tíma voru þó nokkuð margir sem höfðu samband með skilaboð á borð við:

'Ég var nú reyndar búin að fá þessa hugmynd á undan ykkur' eða 'Þið stáluð hugmyndinni minni'

Þetta var fólk sem hvorug okkar hafði séð áður og vorum ekki í aðstöðu til að stela einu eða frá og ekki veit ég til þess að nokkur þessara hugsuða hafi útfært hugmyndina á annan hátt eða gert neitt annað við hana. Það gerist líka reglulega að einhver hafi samband við mig með skilaboðin:'ég er með hugmynd fyrir þig'. Venjulega hugmyndir sem viðkomandi myndi aldrei leggja vinnu í að framkvæma og oftar en ekki afar ófrumlegar hugmyndir sem hundruð annarra hafa fengið á undan honum/henni. Ég er sjálf með helling af skemmtilegum hugmyndum en aldrei hefur neinn komið til mín og sagt 'ég skal sjá um að fjármagna hugmyndir þínar og ýta þeim í framkvæmd' enda er það miklu erfiðara en að fá hugmyndir.

Hið sanna er að góð hugmynd er einskis virði fyrr en búið er að ýta henni í framkvæmd. Sem er einmitt ástæðan fyrir því að það er ekki hægt að stela hugmyndum. Það er hugsanlega hægt að stela tækifærinu til að nýta hugmyndina, jafnvel uppskriftinni að því hvernig á að framkvæma hana en ekki hugmyndinni sem slíkri.

Allir fá sniðugar hugmyndir, allir gætu lifað á köllun sinni ef sköpunargáfa og ástríða skiptu einhverju máli. En það eru bara því miður þeir sem sjá um að skipuleggja og markaðssetja sem breyta heiminum. Þessvegna getur hver sá sem heldur að hann hafi merkilegar hugmyndir, annað hvort notað þær eða troðið þeim upp í *** á sér. Þær eru jafn vel geymdar þar og í kollinum.


mbl.is Flestir eiga frábærar hugmyndir í kollinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðhátíðardeginum bjargað

ég hélt að ég gæti afskrifað 17. júní enda þjóðin búin að missa sjálfstæði sitt. En þessi maður bjargaði deginum. Hér eftir held ég hann hátíðlegan til að minnast þess að enn eru til karlmenn á Íslandi.
mbl.is Þjóðfundur við Hólmatún
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Berjumst fyrir mannréttindum fjölskyldunnar

Þetta er sennilega eina fjölskyldan á Íslandi sem ekki getur séð sér farborða en á samt ekki neinn rétt á bótum úr félagslega kerfinu. Það er engin sanngirni í því að Sigurjón sitji uppi með fjölda ómaga, atvinnulaus maðurinn og þurfi að grafa undan sjálfum sér með því að leysa út lífeyrissparnaðinn sinn.

Allir á Austurvöll, krefjumst mannréttinda fyrir bankastjóra og fjölskyldur þeirra.


mbl.is Líkir láni bankastjóra við almenn lífeyrissjóðslán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband